Sleppa og fara á aðalsíðu

Síðasta rúmið sem þú munt þurfa

DUX Sustainable Comfort

Nýjasta kynslóð hins goðsagnakennda DUX-rúms er byggð á stöðugri nýsköpun í hartnær öld. Sustainable Comfort-línan stuðlar enn á ný að markmiði okkar um að búa til árangursríkari og endingarbetri svefnvörur. Með einstöku hlutaskiptu kerfi og náttúrulegum hágæðaefnum getum við lofað því að þessi rúm munu standa undir nafni í hvívetna.

Sjálfbær smíði

Fyrsta flokks efniviður. Einstök þægindi.

Hágæða hráefni sem aflað er á sjálfbæran hátt hafa alltaf verið kjarninn í DUX-rúmum, allt frá hægvaxta furu í grindunum okkar til gorma úr háþrýstistáli. Í nýjustu vörulínunni okkar tökum við enn eitt skrefið í þess átt og leggjum áherslu á náttúrulegar trefjar, meðal annars 100% ull, bómull með hárri þráðatölu og náttúrulegt latex. Þetta minnkar ekki bara umhverfisáhrif rúmsins heldur gerir svefnupplifunina líka betri, með auknum stuðningi við allan líkamann og bætta hitastýringu yfir nóttina.

Hlutaskipta svefnkerfið okkar

Ekkert rúm er hægt að sérsníða betur

Engir tveir líkamar eru eins. Hvers vegna ætti þá vara sem er jafn einstaklingsmiðuð og rúm að vera „í einni stærð sem passar öllum“? Við teljum að lykillinn að bættum nætursvefni sé að geta sérsniðið þína hlið rúmsins að þínum þörfum. Sustainable Comfort-hönnunin byggir á þremur mismunandi lykilþáttum fyrir góðan svefn og býður upp á óviðjafnanlega valkosti til að stilla stuðninginn í rúminu. Þar á meðal má nefna Pascal-kerfið okkar, sem er með útskiptanlegum gormum, lausum DUX-yfirdýnum og nýrri uppfærslu af innra lagi til þægindaauka.

Sjá alla íhlutina okkar

Rúm fyrir alls konar svefn

Mismunandi fólk hefur mismunandi þarfir. Sustainable Comfort er breið vörulína með ýmsum gerðum sem henta margvíslegum smekk. Skoðaðu úrvalið hér að neðan.

Endurnýjaðu þægindi DUX-rúmsins þíns

Með einstöku hlutaskiptu svefnkerfi okkar er hægt að uppfæra lykilhluta rúmsins þíns eða skipta þeim út eftir þörfum. Því geturðu stöðugt lengt endingu rúmsins – og tryggt endalaus þægindi.